Auglýsing

Undirsíđukubbur

Klukkan

Atburđarteljari

Innskráningar kubbur

Textareitur

81bekkurinn
81bekkurinn123

Spjallkubbur

..Augnablik

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Snilld

27. júlí 2007 klukkan 22:09
Jæja þá er bekkjarmótinu lokið og ég tel að það hafi bara tekist mjög vel. Allavega skemmti ég mér konunglega. Gaman að hitta alla aftur, var orðið mjög langt síðan maður hafði séð suma. Um að gera þetta aftur við fyrsta tækifæri eins og Fúsi tók fram..

En allavega þakka ég bara kærlega fyrir mig

VFS
----II----
1 athugasemd

Ísinn brotinn í kveld

20. júlí 2007 klukkan 10:01

Ístrukeppni!


Jæja bekkjarfélagar kærir, þá er bekkjarmótið að bresta á. Í kvöld ætla þau sem verða komin til Egilsstaða að hittast á Café Nielsen og spjalla um gamla tíma. Svo getum við farið í Valaskjálf og tjúttað í Rokkvöldi en það kostar 800 kall inn.

Við megum ekki vera of lengi úti því þá tekst okkur ekki að vakna í ístrukeppnina sem haldin verður í sundlauginni klukkan 10. Ég vona að menn hafi ekki látið deigann síga við grillkjötið og bjórinn í sumar. Stelpurnar verða í dómnefnd. Keppt verður í þremur flokkum, stærsta ístran, fallegasta ístran og loðnasta ístran.

Á laugardagskvöldið verður líka eitthvað um að vera í Valaskjálf, eða svokallað nostalgíukvöld. En kannski langar okkur meira á ærlegt götufyllerí.

Vona að sjá margar og vel pússaðar ístrur í sundinu.

Kveðja,
Rúnar
----II----
Engin athugasemd

Frábćr mćting

16. júlí 2007 klukkan 22:10


Jæja!!!

Þá er bekkjarmótið að bresta á og það verður frábær mæting! Eftirtaldir ætla að koma á mótið og verða í matnum á Cafe Nielesn:

Baldur, Begga, Davíð, Reinhold, Gauti, Hafdís, Máni, Heiðar, Heiðdís, Heimir, Inga Bára, Ingó, Jóna Björt, Logi, Óli Bragi, Reynir, Rúnar, Siggi, Sigurvin, Snærún, Svanfríður, Tryggvi, Vilmar, Þóra og Þórunn.

Gunnar Rafn kemst ekki í matinn en hann kemur á laugardagskvöldið. Elli og Rúna ætla líka að reyna að komast á laugardagskvöldið.

Í heildina verðum við 34 í matnum en nokkrir koma með maka og svo bjóðum við líka Vigdísi og Fúsa.

Við munum eiga góða stund saman. Á laugardaginn verða allir í bekkjarmótsbolnum og ekki gleyma að taka með reiðufé til að borga bolinn og morgunmatinn á sunnudagsmorguninn. 1500-2000 krónur í heildina. Ég lofa að bolurinn mun koma skemmtilega á óvart!

Og þið sem sögðuð að þið kæmust ekki, það er ekki of seint að skrá sig. Hringið bara í mig í síma 868-2502

Hlakka til að sjá ykkur öll,

Rúnar

----II----
Engin athugasemd

Dagskráin tilbúin!!!

26. júní 2007 klukkan 11:46

 
Dagskráin er tilbúin!!!



Föstudagur 20. júlí

20:00 Opið hús á Nielsen - ísinn brotinn


Laugardagur 21. júlí

10:00 Sund fyrir þá sem vilja

12:00 Hádegismatur óskipulagður.

13:00 Bekkjarmótið formlega sett í Nýjung

Skorum á alla að mæta í gömlum fötum!

14:00 Skoðunarferð um gamla skólann okkar

14:30 Labbitúr upp í Selskóg og farið í leiki

16:00 Horft á stórleik Hattar og KS/Leifturs á Vilhjálmsvelli
19:00 Út að borða á Café Nielsen - makar velkomnir

22:00 Partí á Brávöllum 5 - horft á gömul vídeó


Sunnudagur 22. júlí

10:00 til 12:00 Morgunmatur og fótbolti í Nýjung - börn og makar velkomin

Kveðjustund


Taka með:

Góða skapið

Hlý föt (regnstakk og regnhlíf ef ske kynni)

Gömul föt: Krumpugalla, apaskinnsgalla, hattargalla og slíkt

Gamlar myndir

1500 krónur fyrir morgunmat og glæsilegum bekkjarmótsbol

Ef þið hafið einhverjar spurningar ekki hika við að hringja

Begga 866-8010

Rúnar Snær 868-2502

Matseðill á Café Nielsen
21. júlí 2007 

Forréttir:
Salat með reyktum laxi og fetaosti                       
eða
Eðalsjávarréttasúpa með rjómatopp

Aðalréttir: 
Kryddjurtahjúpuð kjúklingabringa með sveppasósu                       
eða
Lambafille með kryddjurtasósu                       
eða
Ofnbakaður saltfiskur með ólívum, hvítlauk og sólþurrkuðum tómötum

Eftirréttir:
 
Frönsk súkkulaðikaka með ís og rjóma                       
eða
Ís og ávextir 

Verð með lamb í aðalrétt:   
      
3ja rétta   4250 kr./pr.mann
     
2ja rétta  3450 kr./pr.mann

Verð með kjúkling í aðalrétt: 
   
3ja rétta   3900 kr./pr.mann
     
2ja rétta  3000 kr./pr.mann

Verð með saltfisk í aðalrétt:      
3ja rétta  3500 kr./pr.mann
     
2ja rétta  2650 kr./pr.mann
  

Vinsamlegast veljið hvað þið viljið og látið mig vita sem fyrst á netfangið
runar@hi.is
Látið mig líka vita ef þið komið með maka í matinn og hvað hann/hún vill.
Ég þarf að vita hvaða rétti þið viljið til að kokkurinn geti pantað rétt magn í hvern rétt.  Ef þið ætlið ekki í matinn látið mig þá líka vita af því, annars þarf ég að hringja í ykkur til að staðfesta.

----II----
1 athugasemd

smávćgilegar tćknilegar breytingatillögur o.fl.

30. apríl 2007 klukkan 00:33
Núna er mögulegt að skrá fleiri en einn notanda á síðuna, sem var ekki hægt þegar við byjuðum með hana.

Spurning er hvort allir skrái ekki sér notanda á sig, þannig að hver og einn hafi þá sér notendanafn og lykilorð..

Þetta er mjög einfalt, skráið ykkur bara fyrst inn eins og venjulega, þ.e. notendanafn: 81bekkurinn, lykilorð: 81bekkurinn123 og svo farið þið í "stillingar" og svo í notendur og skráið bara þær upplýsingar sem þið viljið.

Þetta er svona skemmtilegra ef við ætlum að halda þessari síðu eitthvað við í framtíðinni.

Síðan vil ég hvetja fólk með bloggsíður að setja þær í linka, þó þetta virðist nú ekki vera efnilegur blogg-árgangur..:)

Annars bara allt gott að frétta.. maður er farinn að gera sig kláran að pússa skóna og fara í jakkafötin..

Samt eitt sem ég var að fatta.. það er leikur þann 21. hjá Hetti.. sem betur fer á heimavelli, þannig að ég, Heimir og Logi ( hugsanlega líka Heiðar og Óli Bragi ef það verður mannekla) verðum eitthvað uppteknir milli 14:30 og 18:00.. en fólk kemur bara á völlinn og hvetur okkur til dáða. Aldrei að vita nema Heimir skori mark, þá líklega utanfótar í fjærhornið:)

kv,
VFS

----II----
Engin athugasemd

Ţetta er Hallóra Malin

18. mars 2007 klukkan 21:32
Halló
Þetta er bara ég, Halldóra. Ég er nýkomin heim frá leikferðalagi um Króatíu og Slóveníu með einleik sem ég samdi sem heytir Power of Love. Ég sé það samt stax að ég hefði heldur betur getað sleppt 4 árum í leiklistarskóla, pissing my life away, því að Gunni er pottþétt orðin frægari en ég ( tala ekki um ríkari).
Annars er allt gott að frétta, ég bý bara hérna í Reykjavík, en er nýbúin að stofna atvinnuleikhús á Egilsstöðum, þannig að ég verð eitthvað heima með annan fótinn, og sé ykkur vonandi sem flest í sumar.

Annars segi ég bara bless í bili og ef þið viljið koma og sjá á mig gera mig að algjöru fífli, veriði þá velkomin að koma í Austurbæ á gamaneinleikinn "Power of Love, hið fullkomna deit". Miðaverðið er bara 1500 og símapantanir eru í Austurbæ: 551-4700.
Ég byrja að sýna aftur 23 mars og það verða fáar sýningar. Vonast til að sjá ykkur og veriði velkomin, og hina sé ég þá bara í sumar.

bæjó, Halldóra
----II----
1 athugasemd

Endurfundirnir verđa 21. júlí á Egilsstöđum

13. janúar 2007 klukkan 04:39

Sæll gamli bekkur!

Milli jóla og áramóta hittumst við nokkur úr bekknum og ákváðum að halda endurfundi í sumar. Við vorum sammála um að best væri að ákveða eina helgi með löngum fyrirvara til að sem flestir geti gert ráðstafanir til að komast. Við ákváðum að halda þetta 21. júlí og í Nýjung á Egilsstöðum til að sem auðveldast verði að tapa sér í fortíðarþrá. 

Ég og Begga tókum að okkur að skipuleggja rejúnjonið og höfðum hugsað okkur að við myndum leika okkur makalaust um daginn en fara út að borða með mökum um kvöldið.

Endilega búið til undirsíðu hér á blogginu, segið frá högum ykkar, setjið inn myndir og tengla á barnalandssíður og eigið blogg.

Gaman væri ef einhver á gamlar myndir til dæmis úr skólaferðalögum að þær yrðu settar hingað inn. Ég lýsi sérstaklega eftir myndinni sem tekin var af okkur í forskóla þar sem við sátum öll í leskróknum. Á einhver þá mynd?

Kveðja,

Rúnar Snær

----II----
1 athugasemd

afkvćmi árgangs 81 Egs gerist celeb!

06. janúar 2007 klukkan 19:53
Já fékk góða ábendingu frá honum Sigurði Frey að einn af "okkur" sé kominn vel á veg að verða "celeb" eins og menn kalla það.

Það er enginn annar en hann Gunnar Rafn Borgþórsson, íþróttamaður, íþróttakennari og LEIKARI með meiru..

SMellið á þetta:  -------------llllllllllGRB-Unpluggedllllllllllllllll------------------

fleira var það ekki að sinni

kv
VFS
----II----
Engin athugasemd

Fyrsta fćrslan

02. janúar 2007 klukkan 06:11
jæja..

Það geta allir skráð sig inn á þessa síðu núna og bloggað eða hvað sem er;

aðgangsorð: 81bekkurinn
lykilorð: 81bekkurinn123

ekki samt kaupa neitt því þá dregst það af símreikningnum hans Heimis hehe

Hugmyndin með þessari síðu er að "gamlir" bekkjarfélagar úr árgangi 81 úr Egilsstaðaskóla geti komið hugmyndum og öðru sem þeir vilja á framfæri fyrir bekkjarmótið sem verður haldið næsta sumar. Kannski Rúnar skipuleggjari komi með frekari upplýsingar um það.

Endilega látið alla vita af síðunni ef þið eruð í sambandi við einhverja og verið ekki feimin við að blogga um hvað sem er og ef þið eruð með bloggsíðu þá setjið hana í "tengla".

Þá er að finna gamlar bekkjarmyndir undir myndir, fleiri eru væntanlegar..

Ein gáta í lokin, hver er kennarinn sem sparaði ekki orðin: "í síðasta sinn!"?

kv.
VFS
----II----
Engin athugasemd