Endurfundirnir verða 21. júlí á Egilsstöðum
Sæll gamli bekkur!
Milli jóla og áramóta hittumst við nokkur úr bekknum og ákváðum að halda endurfundi í sumar. Við vorum sammála um að best væri að ákveða eina helgi með löngum fyrirvara til að sem flestir geti gert ráðstafanir til að komast. Við ákváðum að halda þetta 21. júlí og í Nýjung á Egilsstöðum til að sem auðveldast verði að tapa sér í fortíðarþrá.
Ég og Begga tókum að okkur að skipuleggja rejúnjonið og höfðum hugsað okkur að við myndum leika okkur makalaust um daginn en fara út að borða með mökum um kvöldið.
Endilega búið til undirsíðu hér á blogginu, segið frá högum ykkar, setjið inn myndir og tengla á barnalandssíður og eigið blogg.
Gaman væri ef einhver á gamlar myndir til dæmis úr skólaferðalögum að þær yrðu settar hingað inn. Ég lýsi sérstaklega eftir myndinni sem tekin var af okkur í forskóla þar sem við sátum öll í leskróknum. Á einhver þá mynd?
Kveðja,
Rúnar Snær
Rosalega er gaman að sjá!! Frábært framtak hjá ykkur gömlu vinir og bekkjarfélagar! Ætla að vera dugleg að breiða út boðskapinn og láta sem flesta vita af þessari síðu. Þar til næst...Bestu kveðjur til ykkar allra!