Ísinn brotinn í kveld
20. júlí 2007 klukkan 10:01
Ístrukeppni!
Jæja bekkjarfélagar kærir, þá er bekkjarmótið að bresta á. Í kvöld ætla þau sem verða komin til Egilsstaða að hittast á Café Nielsen og spjalla um gamla tíma. Svo getum við farið í Valaskjálf og tjúttað í Rokkvöldi en það kostar 800 kall inn.
Við megum ekki vera of lengi úti því þá tekst okkur ekki að vakna í ístrukeppnina sem haldin verður í sundlauginni klukkan 10. Ég vona að menn hafi ekki látið deigann síga við grillkjötið og bjórinn í sumar. Stelpurnar verða í dómnefnd. Keppt verður í þremur flokkum, stærsta ístran, fallegasta ístran og loðnasta ístran.
Á laugardagskvöldið verður líka eitthvað um að vera í Valaskjálf, eða svokallað nostalgíukvöld. En kannski langar okkur meira á ærlegt götufyllerí.
Vona að sjá margar og vel pússaðar ístrur í sundinu.
Kveðja,
Rúnar
----II----