27. júlí 2007 klukkan 22:09
Jæja þá er bekkjarmótinu lokið og ég tel að það hafi bara tekist mjög vel. Allavega skemmti ég mér konunglega. Gaman að hitta alla aftur, var orðið mjög langt síðan maður hafði séð suma. Um að gera þetta aftur við fyrsta tækifæri eins og Fúsi tók fram..
En allavega þakka ég bara kærlega fyrir mig
VFS
----II----
20. júlí 2007 klukkan 10:01
Ístrukeppni!Jæja bekkjarfélagar kærir, þá er bekkjarmótið að bresta á. Í kvöld ætla þau sem verða komin til Egilsstaða að hittast á Café Nielsen og spjalla um gamla tíma. Svo getum við farið í Valaskjálf og tjúttað í Rokkvöldi en það kostar 800 kall inn.
Við megum ekki vera of lengi úti því þá tekst okkur ekki að vakna í ístrukeppnina sem haldin verður í sundlauginni klukkan 10. Ég vona að menn hafi ekki látið deigann síga við grillkjötið og bjórinn í sumar. Stelpurnar verða í dómnefnd. Keppt verður í þremur flokkum, stærsta ístran, fallegasta ístran og loðnasta ístran.
Á laugardagskvöldið verður líka eitthvað um að vera í Valaskjálf, eða svokallað nostalgíukvöld. En kannski langar okkur meira á ærlegt götufyllerí.
Vona að sjá margar og vel pússaðar ístrur í sundinu.
Kveðja,
Rúnar
----II----
16. júlí 2007 klukkan 22:10
Jæja!!!
Þá er bekkjarmótið að bresta á og það verður frábær mæting! Eftirtaldir ætla að koma á mótið og verða í matnum á Cafe Nielesn:
Baldur, Begga, Davíð, Reinhold, Gauti, Hafdís, Máni, Heiðar, Heiðdís, Heimir, Inga Bára, Ingó, Jóna Björt, Logi, Óli Bragi, Reynir, Rúnar, Siggi, Sigurvin, Snærún, Svanfríður, Tryggvi, Vilmar, Þóra og Þórunn.
Gunnar Rafn kemst ekki í matinn en hann kemur á laugardagskvöldið. Elli og Rúna ætla líka að reyna að komast á laugardagskvöldið.
Í heildina verðum við 34 í matnum en nokkrir koma með maka og svo bjóðum við líka Vigdísi og Fúsa.
Við munum eiga góða stund saman. Á laugardaginn verða allir í bekkjarmótsbolnum og ekki gleyma að taka með reiðufé til að borga bolinn og morgunmatinn á sunnudagsmorguninn. 1500-2000 krónur í heildina. Ég lofa að bolurinn mun koma skemmtilega á óvart!
Og þið sem sögðuð að þið kæmust ekki, það er ekki of seint að skrá sig. Hringið bara í mig í síma 868-2502
Hlakka til að sjá ykkur öll,
Rúnar
----II----